HREY1SN01 - Íþróttir með áherslu á sund
sund
Einingafjöldi: 1
Þrep: 1
Þrep: 1
Í áfanganum kynnist nemandinn mismunandi sundaðferðum og æfir þær. Áhersla verður lögð á tæknina að baki hverri sundaðferð og hvernig efla má úthald. Nemandinn fær leiðsögn við ýmsar tækniæfingar er varða sund og fær þjálfun í að synda með og án hjálpartækja.
Þekkingarviðmið
- að sund styrkir líkamann og eykur úthald og þrek
- að sund er holl og góð hreyfing fyrir líkamann
- að sundið getur verið skemmtileg tómstundaiðja
Leikniviðmið
- koma sér yfir laug með eða án hjálpartækja
- beita tækni varðandi fótatök, handahreyfingar, legu og öndun
- bæta úthald sitt
- þekkja reglur sem gilda á sundstöðum
Hæfnisviðmið
- fara í sund og synda það sund sem hæfir getu og/eða áhuga
- synda sér til heilsubóta
- æfa sund hjá sundfélagi
- fara eftir reglum sem gilda á sundstöðum