ÍSLE1ÁS03 - Íslenska með áherslu á sköpun í víðu samhengi
Læsi og sköpun í víðu samhengi
Einingafjöldi: 3
Þrep: 1
Þrep: 1
Unnið verður með alla þætti íslenskunnar þar sem sköpun er höfð að leiðarljósi í þeim tilgangi að brjóta upp hefðbundið mynstur í íslenskukennslu með áherslu á uppgötvun, gagnrýna hugsun, umræður og ígrundun ásamt hefðbundnum kennsluaðferðum. Notast verður við aldursmiðaðar bókmenntir. Unnið með hugtök, málfræði, íslenska tónlist, lesskilning og fjölbreytt verkefni. Megin áhersla verður á að nemendur viðhaldi og byggi ofan á þann grunn sem þeir búa nú þegar að.
Þekkingarviðmið
- hugtakinu sköpun í víðu samhengi
- að vinnuferlið er ekki síður mikilvægt en afraksturinn
- að hægt er að leita leiða á fjölbreyttan hátt
- að mismunandi skoðanir eru viðurkenndar
- að sjónarhorn allra er jafnt mikilvægt
Leikniviðmið
- hægt er að nálgast viðfangsefni á mismunandi hátt
- beita mismunandi aðferðum til að túlka skoðanir sínar
- gagnrýna á uppbyggilegan hátt
- koma skoðunum sínum á framfæri
Hæfnisviðmið
- leita nýrra leiða og mynda sér sjálfstæðar skoðanir
- hlustað á sjónarmið annarra af víðsýni
- lesa í og/eða nýta sér mismunandi upplýsingar
- tjá eigin skoðanir