ÍSLE1AL03 - Íslenska með áherslu á læsi í víðu samhengi
Almenn málnotkun og læsi
Einingafjöldi: 3
Þrep: 1
Þrep: 1
Í áfanganum er lögð áhersla á lestur og læsi í víðu samhengi, s.s. hugtök, tákn, samskiptamiðla, umhverfi og fl. vinnuferlið miðast við að efla skilning, úrvinnslu og samskipta- og umhverfislæsi í þeim tilgangi að nemendur verði virkari og hæfari þátttakendur í samfélaginu. Notast verður við aldursmiðaðar bókmenntir, íslenska tónlist og fjölbreytt verkefni. Megin áhersla verður á að nemendur viðhaldi og byggi ofan á þann grunn sem þeir búa nú þegar að.
Þekkingarviðmið
- hugtakinu læsi í víðu samhengi
- mikilvægi tjáningar og skynjunar
- ýmsum aldurs- og áhugamiðuðum hugtökum
- mismunandi tjáskiptaleiðum
- mikilvægi lesturs og bókmennta
Leikniviðmið
- nýta sér upplýsingar á stafrænum miðlum
- tjá sig með fjölbreyttum leiðum
- vinna með texta sem hann hefur lesið og/eða hlustað á
- taka þátt í umræðum
- lesa upp og/eða tjá sig fyrir framan aðra
- lesa og/eða hlusta á texta sér til gagns og gleði
Hæfnisviðmið
- nýta sér læsi í víðu samhengi
- hlusta á sjónarmið annarra af víðsýni
- nýta sér upplýsingar sem koma fram t.d. í fjölmiðlum og netmiðlum
- tjá eigin skoðanir
- nýta sér ýmsa texta, s.s. bækur, fréttir, fræðigreinar og fl.