UPPT1AF02 - Upplýsingatækni með áherslu á notkun algengra forrita
Algeng forrit, hjálpartæki, samfélagsmiðlar, vefsíður
Einingafjöldi: 2
Þrep: 1
Þrep: 1
Áhersla er á upplýsingalæsi í víðu samhengi og nemendur fá að kynnast ýmsum hliðum sem snúa að upplýsingatækni. Farið verður í grunnatriði í tölvumálum, reglur sem gilda í tölvusamskiptum og umgengni við tölvukerfi skólans. Nemendur verða látnir tileinka sér Innu og Moodle jafnt og þétt yfir önnina. Áhersla verður á að efla færni nemenda í vinnu með ritvinnsluforrit, glæru-/kynningarforrit og reikniforrit. Einnig verða smáforrit sem hægt er að nálgast á netinu skoðuð og nemendur vinna í þeim ýmis verkefni. Farið verður í myndbanda og myndvinnslu.
Þekkingarviðmið
- að tölvur eru stór hluti af daglegu lífi okkar
- mikilvægi þess að fylgja ákveðnum umgengisreglum við tölvunotkun
- því að vanda tölvusamskipti eins og önnur samskipti
- mikilvægi þess að kunna að setja upp aðgengilegan texta, skjöl og ýmsar kynningar
Leikniviðmið
- að greina á milli þess hversu áreiðanlegar upplýsingar eru á netinu
- að nýta sér netið á öruggan og ánægjulegan hátt
- vinna með ýmis tölvuforrit
- tjá sig á viðeigandi hátt í gegnum tölvusamskipti
Hæfnisviðmið
- lesa í og/eða nýta sér upplýsingar sem koma fram á síðum um örugga netnotkun
- auka sjálfstraust sitt og trú á eigin tölvulæsi
- lesa í mismunandi tölvuumhverfi í þeim tilgangi að átta sig á hvað er viðeigandi hverju sinni
- lesa í leik- og samskiptareglur
- senda frá sér vel upp sett skjöl og ritaðan texta á skilmerkilegan og snyrtilegan hátt