UPPT1TU02 - Upplýsingatækni með áherslu á samskipti og tómstundir
tómstundir og upplýsingatæni
Einingafjöldi: 2
Þrep: 1
Forkröfur: UPPT1AF02
Þrep: 1
Forkröfur: UPPT1AF02
Í áfanganum kynnast nemendur notkunarmöguleikum tölvunnar/spjaldtölvunnar og fræðast um örugga netnotkun, vírusvarnir og skrifaðar/óskrifaðar reglur á samskiptavefjum/bloggsvæðum. Unnið verður með grunnatriði ritvinnslu. Áhersla verður á ýmis forrit og notkunarmöguleika þeirra. Skoðaðar verða ýmsar samskiptareglur tengdar tölvusamskiptum, jákvæð tölvusamskipti og hvað ber að varast. Nemendur vinna með ljósmyndir, teikningar, form og liti og fá tækifæri til sköpunar með hin ýmsu form tölvutækninnar t.d varðandi afþreyingu.
Þekkingarviðmið
- að tölvur eru stór hluti af daglegu lífi okkar
- mikilvægi þess að fylgja ákveðnum umgengisreglum við tölvunotkun
- því að vanda tölvusamskipti eins og önnur samskipti
- mikilvægi þess að kunna að setja upp aðgengilegan texta, skjöl og ýmsar kynningar
- að sköpunin felst í vinnuferlinu ekki síður en afrakstrinum
Leikniviðmið
- að greina á milli þess hversu áreiðanlegar upplýsingar eru á netinu
- að nýta sér netið/samskiptavefi á öruggan og ánægjulegan hátt
- vinna með texta sem hann hefur lesið og/eða hlustað á
- vinna með ýmis tölvuforrit og fara mismunandi leiðir í sköpunarferlinu
- að átta sig á því að hugmyndir annarra eru oft ólíkar eigin hugmyndum
- útbúa og nota sitt eigið netfang og tjá sig á viðeigandi hátt í gegnum tölvusamskipti
Hæfnisviðmið
- lesa í og/eða nýta sér upplýsingar sem koma fram á síðum um örugga netnotkun
- auka sjálfstraust sitt og trú á eigin tölvulæsi
- hlusta á sjónarmið annarra af víðsýni
- lesa í mismunandi tölvuumhverfi í þeim tilgangi að átta sig á hvað er viðeigandi hverju sinni
- þekkja muninn á því sem er raunverulegt og óraunverulegt
- lesa í leik-og samskiptareglur
- senda frá sér vel upp sett skjöl og ritaðan texta á skilmerkilegan og snyrtilegan hátt
- koma hugmyndum og verkum sínum á framfæri
- prófa sig áfram með tölvuforritum og vinna að sköpun sinni á fjölbreyttan hátt