HEFR1ÍS02 - Heimilisfræði með áherslu á íslenska matarmenningu og fjölbreytileika
íslensk matarmenning og fjölbreytileiki
Einingafjöldi: 2
Þrep: 1
Forkröfur: HEFR1HO02
Þrep: 1
Forkröfur: HEFR1HO02
Í áfanganum er fjallað um íslenska matarmenningu frá upphafi og fram á þennan dag. Hinar miklu breytingar skoðaðar og sérstaklega horft til fjölbreytileikans. Nemendur elda hefðbundin íslenskan mat, sérstaklega þann sem haldið hefur velli í áranna rás. Nemendur leysa verkefnin á sjálfstæðan hátt en einnig í samvinnu við aðra.
Þekkingarviðmið
- mikilvægi þess að þekkja til sögu matarmenningu á Íslandi
- mikilvægi þess að þekkja til sögu matarhefðar á Íslandi
- geymsluaðferðum matvæla gegnum tíðina
- breytingum á áhöldum, tækjum og tólum við matargerð gegnum tíðina
- samsetningu fæðunnar gegnum tíðina
- mikilvægi fjölbreyttrar fæðu og áhrif hennar á líkamann
- sjálfstæðum vinnubrögðum, samvinnu, verkaskiptingu og hreinlæti
Leikniviðmið
- þekkja gamlar uppskriftir
- breyta gömlum uppskriftum til að gera þær hollari og prófa þær
- þekkja mismunandi hráefni og mikilvægi þeirra
- lesa utan á umbúðir, sjá hvaða hráefni er í vörunni og úr hvaða fæðuflokkum
- velja viðeigandi geymslustað fyrir matvæli, bæði tilbúin og í umbúðunum
- viðhafa viðeigandi hreinlæti við matargerð og nota viðeigandi búnað
- vinna sjálfstætt og í samvinnu við aðra nemendur
Hæfnisviðmið
- gera sér grein fyrir mikilvægi þess að þekkja þann hluta sögu íslendinga sem snýr að matarmenningu og matarhefðum gegnum tíðna
- gera sér grein fyrir hinum stórkostlegu breytingum sem hafa orðið á gleymslu og vinnslu matvæla
- lesa og nýta sér mismunandi uppskriftir og vinna eftir þeim
- gera sér grein fyrir hvaðan hráefnið kemur og hvernig það er unnið
- verða meðvitaðir um hollustu matvæla og áhrif þeirra á líkamann
- sýna hver öðrum virðingu, umburðarlyndi og vera fær um ýmis konar samvinnu
- nýta eigin hæfileika og frumkvæði í að skapa úr mismunandi hráefnum