STÆF1DL02 - Stærðfræði daglegs lífs
peningar, tímahugtök, tímaáætlanir og grunnaðferðirnar fjórar, verðgildi
Einingafjöldi: 2
Þrep: 1
Þrep: 1
Í áfanganum er unnið með stærðfærði daglegs lífs með fjölbreyttum nálgunum. Það verður meðal annars gert með mismunandi verkefnavinnu, vettvangsferðum í verslanir, í gegnum veraldarvefinn, notaðir verða tilboðsbæklinga og spil. Stefnt er að því að viðhalda og byggja ofan á þann grunn sem nemandi hefur þegar tileinkað sér.
Þekkingarviðmið
- hvar og hvenær stærðfræði kemur við sögu í daglegu lífi
- gildi peninga
- fjölbreytileika verslana
Leikniviðmið
- nýta sér stærðfræðikunnáttu sína í daglegu lífi
- fylgja dagsskipulagi
- fylgja tímaáætlun
Hæfnisviðmið
- taka þátt í stærðfræðilegum athöfnum daglegs lífs
- átta sig á tíma- og dagsetningum
- yfirfært stærðfræðikunnáttu sína þegar hann verslar inn