STÆF1HB02 - Stærðfræði með áherslu á fjármálalæsi
heimilisbókhald tekjur og útgjöld, peningar
Einingafjöldi: 2
Þrep: 1
Þrep: 1
Í áfanganum er lögð áhersla á fjármálalæsi í víðu samhengi. Farið verður yfir helstu persónulegu útgjöld í lífi ungs fólks, heimilisbókhald og gildi þess að halda utan um eigin fjármál. Stefnt er að því að viðhalda og byggja ofan á þann grunn sem nemandi hefur þegar tileinkað sér.
Þekkingarviðmið
- mikilvægi réttinda og skyldna neytenda
- mikilvægi þess að hafa yfirsýn yfir eigin útgjöld og tekjur
- virkni greiðslukorta
- að stundum þarf að forgangsraða í fjármálum
Leikniviðmið
- lesa á launaseðil eða tryggingaryfirlit
- byggja upp sparnað á einfaldan og hagkvæman hátt
- standa við þær skuldbindingar sem viðkomandi hefur sett sig í
Hæfnisviðmið
- halda utan um eingin fjármál með eða án aðstoðar
- átta sig á tengingunni milli réttinda og skylda