STÆF1PE02 - Stærðfræði með áherslu á peninga
peningar, verðgildi og grunnaðferðirnar fjórar
Einingafjöldi: 2
Þrep: 1
Þrep: 1
Í áfanganum er lögð áhersla á peninga og gildi þeirra. Unnin verður mismunandi verkefnavinna, farið verður í vettvangsferðir í verslanir, veraldarvefurinn verður nýttur, notaðir verða tilboðsbæklingar og spil. Stefnt er að því að viðhalda og byggja ofan á þann grunn sem nemandi hefur þegar tileinkað sér.
Þekkingarviðmið
- íslenskum peningum
- gildi og meðferð peninga
- að til eru fjölbreyttir gjaldmiðlar
Leikniviðmið
- borgað og/eða tekið við viðeigandi peningarupphæðum
- þekkja íslenska peninga
- nýta sér og eða vinna með peninga í víðu samhengi
Hæfnisviðmið
- nýtt sér peninga í athöfum daglegs lífs
- framkvæmt greiðslu eða borgun í réttu hlutfalli
- nýtt sér viðeigandi hjálpartæki þegar það á við, s.s. reiknivél í símum
- áttað sig á því hvaðan peningarnir koma og mikilvægi þess að halda vel utan um þá