STÆF1AS02 - Stærðfræði með áherslu á almenna stærðfræði
frádráttur, margföldun og deiling, samlagning
Einingafjöldi: 2
Þrep: 1
Þrep: 1
Í áfanganum er unnið með útreikninga og stærðfræðileg hugtök sem nýtast nemendum í daglegu lífi. Dæmi um viðfangsefni eru tölur, samlagning, frádráttur, margföldun og deiling. Stefnt er að því að viðhalda og byggja ofan á þann grunn sem nemandi hefur þegar tileinkað sér.
Þekkingarviðmið
- undirstöðuatriðum í reikningsaðgerðum
- mikilvægi stærðfræðinnar í daglegu lífi
Leikniviðmið
- nota vasareikni
- nota algeng stærðfræðitákn
- leysa úr stærðfræðilegum upplýsingum
Hæfnisviðmið
- skrá lausnir sínar á skipulagðan hátt
- fylgja fyrirmælum sem gefin eru
- beita skipulögðum aðferðum við lausn verkefna sem tengjast námsefninu