NÁLÆ1LA02 - Landafræði nær og fjær
Ísland og heimsbyggðin
Einingafjöldi: 2
Þrep: 1
Þrep: 1
Unnið verður með Ísland og Íslandskort með sérstakri áherslu á Norðausturland. Lögð verður áhersla á að nemendur þekki sitt nærumhverfi. Nemendur fá einnig að kynnast ölllum heimsálfunum og löndum innan þeirra. Menning landanna og saga verður skoðuð og borin saman.
Þekkingarviðmið
- nöfnum bæjarfélaga á Norðausturlandi
- fjölda íbúa á hverjum stað
- helstu kennileitum bæjarfélaganna
- helstu ferðamannastöðum á Norðausturlandi
- hvernig heimurinn skiptist í heimsálfur
- fjölbreytileika mismunandi heimsálfa
Leikniviðmið
- setja sig í spor ferðamanns og ferðast á hina ýmsu staði
- nefna og aðgreina bæjarfélög á Norðausturlandi
- leita mismunandi leiða í vinnuferlinu
- nálgast viðfangsefni á mismunandi hátt
- að beita mismunandi aðferðum í vinnuferlinu
- þekkja heimsálfurnar
- tengja saman lönd og heimsálfur
- lesa á landakort
- afla sér upplýsinga um lönd og geta miðlað upplýsingum um þau
Hæfnisviðmið
- tala um og/eða ferðast um ákveðna staði
- taka eftir ólíkum viðfangsefnum
- greina á milli aðal- og aukaatriða
- hlustað á sjónarmið annarra af víðsýni
- lesa í og/eða nýta sér mismunandi upplýsingar í umhverfinu
- tjá eigin skoðanir
- taka þátt í umræðum um heimsálfur
- miðla fróðleik til annarra