SAGA1ÝM03 - Saga með áherslu á menningar og samfélagssögu Íslands
Ýmislegt úr mannkynssögunni og sögu Íslands
Einingafjöldi: 3
Þrep: 1
Þrep: 1
Áfanginn miðar að því að nemendur fræðist um hvernig ýmislegt í menningunni og samfélaginu hefur þróast og breyst á sl. 50 árum. Fjallað verður um ýmsa atburði og staði, sögufrægar persónur, breytta lífshætti, tækniframfarir og aukna þekkingu á ýmsum sviðum.
Þekkingarviðmið
- þróun og breytingum samfara aukinni menntun
- þróun og breytingum samfara aukinni tækni
- ýmsum atburðum sem gerst hafa og hafa haft áhrif á land og þjóð
Leikniviðmið
- nýta sér bókasöfn og tækni í upplýsingaleit
- tjáð skoðanir sínar, hlusta á og ígrunda skoðanir annarra
- eiga jákvæð samskipti og samstarf við aðra
- nýta sér fjölbreyttari orðaforða
Hæfnisviðmið
- tileinka sér jákvætt hugarfar og víðsýni
- auka trú á eigin getu
- tengja þekkingu sína við daglegt líf
- bera virðingu fyrir mismunandi lífsgildum, mannréttindum og jafnrétti