SAUM1ES02 - Fatasaumur með áherslu á að sauma flík eftir eigin vali
efni, snið og saumur
Einingafjöldi: 2
Þrep: 1
Þrep: 1
Vinnuferlið miðast viðað efla færni og sjálfsmynd nemanda við að takast á við ögrandi verkefni hverju sinni, nemendur læra grunnatriði í fatasaum og að vinna við saumavél. Áhersla á læsi í að greina snið og eðli þess að taka upp snið úr blöðum, taka mál og áætla stærð á flík, teikna upp eigin hugmynd og útfæra hana. Að nemandinn skilji vinnuferlið frá hugmynd að fullunninni flík.
Þekkingarviðmið
- taka raunhæfar ákvaraðanir varðandi val á verkefni
- einföldustu atriðum í notkun saumavélar
- taka líkamsmál og bera þau saman við máltöflur og finna viðeigandi stærð, læra að gera áætlun um efnisþörf í flíkina
- geti tekið upp snið úr blaði, gera einfaldar breytingar ef þarf s.s. að stytta, síkka, víkka og þrengja
- að leggja þráðrétt á efni og mæla fyrir saumförum
Leikniviðmið
- taka líkamsmál og skilja stærðartöflur
- útfæra eigin hugmynd og/eða einföld snið
- raða sniðflötum á efni eftir þráðréttu
- teikna saumför, falda og aðrar merkingar áður en klippt er
- nota saumavél og þekkja einföldustu stillingar
- sauma einfaldar flíkur
Hæfnisviðmið
- útfæra snið í einfaldar flíkur eftir eingin hugmyndum og fullgera þær
- útskýra vinnuferlið frá hugmynd að fullunninni flík
- sníða flíkur og sauma á saumavel
- nemandinn temji sér vönduð vinnubrögð
- auki sjálfstraust sinn og trú á eigin sköpun og getu