TÓNL1DS02 - Listir með áherslu á tónlist og dans
Tjáning í gegnum leik-, dans- og sönglist
Einingafjöldi: 2
Þrep: 1
Þrep: 1
Fjallað verður um ýmis hljóðfæri í máli og myndum og hlustað á tóndæmi sem tengjast efninu. Þekkt sönglög verða valin og sungin og nemendur skapa eigið lag sungið eða leikið. Kynntir verða vinsælir söngleikir eða leikhúsverk þar sem tónlist er í stóru hlutverki og sagt frá tónlistarmönnum sem notið hafa mikilla vinsælda og tónlist þeirra og textar skoðaðir. Sungin verður fjölbreytt tónlist í hópi og ýmsir tónlistarmiðlar skoðaðir.
Þekkingarviðmið
- mismunandi hljóðfærum og notkun þeirra
- uppbyggingu mismunandi hljómsveita
- mikilvægi þess að læra texta
- mikilvægi hlustunar og tjáningar
- að tjáningarform eru mismunandi
- mikilvægi tjáningar og framsagnar
- geta upplifað fordómalaust t.d. tóndæmi, leikverk og kvikmyndir
- geta tekið þátt í umræðum, myndað sér skoðun og tjáð hana
Leikniviðmið
- syngja eða tjá sig og finna áhugasvið innan tónlistar
- koma skoðunum sínum á framfæri og taka þátt í umræðum
- nýta sér styrkleik sína til tjáningar
- þekkja ýmsar stefnur í tónlist
Hæfnisviðmið
- geta hlustað án fordóma á ýmis tóndæmi
- geta tjáð öðrum áhugasvið sín varðandi tónlist
- geta nýtt sér fjölbreytta miðla til að nálgast efni
- vinna í teymi og átta sig á mikilvægi skipulagðra vinnubragða
- gera sér grein fyrir mikilvægi skapandi hugsunar