IÐNT3CN04 - Iðnteikning - CAD/CAM teikningar, ferlar, aðgerðir
CAD/CAM teikningar
Einingafjöldi: 4
Þrep: 3
Þrep: 3
Nemendur kynnast aðferðum sem beitt er til að smíða hluti samkvæmt teikningu í tölvustýrðri iðnaðarvél. Þeir kynnast og verða færir um að beita ISO kóða og G kóða. Teikniforrit til að búa til vinnslustykki er kynnt (CAD - Computer Aided Design) og sömuleiðis vélaforrit til að forrita ferla og aðgerðir til vinnslu smíðahluta (CAM – Computer Aided Manufacturing).
Þekkingarviðmið
- grundvallarhugtökum og virkni forrita tölvustýrðra iðnaðarvéla.
- mælieiningum í teikniforritum.
- notkunarmöguleikum CAD-CAM tækni.
- hvernig verkfæri eru valin.
- hlutverkum og virkni x, y og z ása.
- uppbyggingu og virkni tækjanna.
- teikningartáknum þeirra íhluta sem um er fjallað.
- öryggisatriðum og öryggisstöðlum.
Leikniviðmið
- vinna með teikningar og undirbúa fyrir vinnslu í tölvustýrðum iðnvélum.
- áætla efnismagn.
- skipuleggja og velja verkfæri fyrir mismunandi CNC-skipanir.
- leysa verkefni fyrir þriggja ása CNC-stýrða rennibekki og fræsivélar.
Hæfnisviðmið
- beita CAD og CAM forritum á öruggan og árangursríkan hátt.
- afla upplýsinga og gagna um vinnslu og skipulag verka fyrir CNC-stýrðar vélar.
- mæla upp hlut, teikna í Inventor og forrita í CAM.