MATR1MG10 - Matreiðsla grunnur
MATR
Einingafjöldi: 10
Þrep: 1
Þrep: 1
Í áfanganum er farið í notkun á helstu tækjum í eldhúsi, hnífum og smááhöldum. Farið yfir allar helstu matreiðsluaðferðir og algengasta hráefni til matargerðar með áherslu á íslenska matargerð. Lögð er áhersla á undirstöðuaðferðir s.s. skurð og meðferð á grænmeti, ávöxtum, fiski og kjöti. Farið er í soð-, súpu- og sósugerð. Unnið er með morgunverð, algenga hádegis- og kvöldverðarétti og eftirrétti. Áhersla er á fæðutengdar ráðleggingar Embættis Landlæknis um hollari matargerð. Unnið er eftir gæðastöðlum um innra eftirlit, HACCP.
Þekkingarviðmið
- öllum grunnsoðum, hér átt við: Skelfisks- og fisksoð, brún og ljós kjötsoð
- öllum klassískum súpuflokkum, hér er átt við: Tærar súpur, vélotésúpur, rjómasúpur, mauksúpur, sértækar súpur og þjóðarsúpur
- notkun á grænmeti, grjónum, pasta og kornmeti sem meðlæti og sem hluta af heilstæðri máltíð
- notkun á íslenskum bolfiski, flatfiski, skelfiski og íslenskum og erlendum sláturafurðum og villibráð sem hluta af heilstæðri máltíð
- klassískum eftirréttum; heitum, köldum og frosnum
- ferlum við útsendan mat og gæðastöðlum um innra eftirlit: HACCP
Leikniviðmið
- skipuleggja sérhæfða verkferla í samræmi við fyrirliggjandi verkefni
- setja saman og matreiða öll grunnsoð, grunnsúpur og afleiddar súpur
- reiða fram allar helstu grunn- og afleiddar sósur
- matreiða einfalda grænmetis-, grjóna- og pastarétti
- undirbúa og matreiða alla helstu klassíska hádegisverðarrétti og nota til þess algengar íslenskar sjávarafurðir og sláturafurðir
- matreiða helstu íslenska þjóðarrétti
- setja saman helstu eftirrétti
- reikna út næringargildi og áætla skammtastærðir
- matreiða samkvæmt fæðutengdum ráðleggingum Embættis landlæknis
Hæfnisviðmið
- útskýra vinnuferla sem byggja á aðferðafræði er lýtur að matreiðslu almenns fæðis með áherslu á fæðutengdar ráðleggingar Embættis landlæknis
- geta skipulagt verkferla og verkefnalista og unnið eftir þeim í matreiðslu á almennu fæði
- meta störf sín og annarra í matreiðslu á hlutlægan hátt
- sýna fram á ábyrgð í umgengni í kennslurýmum