NÁTÖ1UT03 - Nám og tölvur
tölvur og upplýsingatækni
Einingafjöldi: 3
Þrep: 1
Þrep: 1
Í áfanganum eru kennd undirstöðuatriði í notkun á tölvum og upplýsingatækni. Lögð er áhersla á að nemendur læri á þau verkfæri sem notuð eru í kennslu og læri að nýta sér internetið til gagnaöflunar. Nemendur frá þjálfun í algengustu verkfærum, s.s. ritvinnslu, töflureikni og tölvupósti, meðferð heimilda, geymslu gagna, myndbandsgerð og námsumsjónakerfi skóla. Einnig er farið í samskiptareglur á internetinu.
Þekkingarviðmið
- notagildi upplýsingatækni
- notagildi helstu tölvuforrita
Leikniviðmið
- beita mismunandi hugbúnaði við miðlun á verkefnum, ritgerðum og skýrslum
- setja fram og kynna lausnir á afmörkuðum verkefnum s.s. að reikna út kostnað, framlegð
- gera áætlun um innkaup og setja upp súlurit
- setja upp stærri skjöl með forsíðu, efnisyfirliti, tilvitnunum og heimildaskrá
Hæfnisviðmið
- skipuleggja úrvinnslu verkefna sem einstaklingur eða í hóp
- nota upplýsingatækni, tölvukunnáttu og stærðfræði til miðla skoðunum sínum og koma niðurstöðum á framfæri.