RAMV3RF05 - Rafmagnsfræði fyrir vélstjóra 4
fasvik, rafmagnsfræði riðstraums, vektormyndir
Einingafjöldi: 5
Þrep: 3
Forkröfur: RAMV2SR05, STÆF2RH05
Þrep: 3
Forkröfur: RAMV2SR05, STÆF2RH05
Þessi áfangi fjallar um grundvallaruppbyggingu og eðli riðstraums og þau lögmál og hugtök
sem þar eiga við. Nemendur öðlast þekkingu og færni við að beita vektoramyndum og
útreikningi í riðstraumsrásum og öðlast þannig skilning á orsökum og áhrifum fasviks í
riðstraumsrásum bæði, einfasa og þriggja fasa, ásamt því að öðlast betri skilning á
raforkukerfum og geti annast rekstur þeirra.
Þekkingarviðmið
- grundvallarhugtökum riðstraumsfræðinnar
- fasviki í riðstraumsrásum og orsökum þess
- notkun vektora við að ákvarða stærðir í riðstraumsrásum
- notkun hornafalla til að reikna út stærðir í vektoramyndum
- þrískiptingu afls í riðstraumsrásum
- aðferðum við að leiðrétta fasvik í riðstraumsrásum
Leikniviðmið
- framkvæma útreikninga á einfasa riðstraumsrásum með blönduðu álagi
- framkvæma útreikninga á þriggja fasa riðstraumsrásum með og án fasviks
Hæfnisviðmið
- Finna orsök óeðlilegs fasviks í skipum
- reikna út stærðir þétta sem þarf til að leiðrétt fasvik