STAÞ2SR20(AV) - Starfsþjálfun 2
starfsþjálfun í rafvirkjun
Einingafjöldi: 20
Þrep: 2
Forkröfur: STAÞ1SR20
Þrep: 2
Forkröfur: STAÞ1SR20
Nemandi öðlist þekkingu á vali á rafbúnaði og geti annast tengingar á lág og smáspennulögnum. Nemandi geti með mælitækjum fundið bilanir í raflögnum.
Nemandi á að fá grunnþjálfun í vinnu við viðgerðir og uppsetningu á mismunandi gerðum raflagna-, öryggis- og stýrikerfa.
Þekkingarviðmið
- öryggiskröfum og öryggi á vinnustað
- vali á búnaði til nota í raflögnum
- mikilvægi fagmannlegra vinnubragða og vandvirkni
Leikniviðmið
- meðhöndla og beita handverkfærum og mælitækjum sem þarf að nota við rafvirkjastörf
- leggja og tengja raflagnir á fagmannlegan hátt
- lesa teikningar og áætla magntölur
Hæfnisviðmið
- velja rafbúnað í allar almennar lágspennu og smáspennuraflagnir.
- annast uppsetningu og frágang allra almennra raflagna, stýringa og smáspennukerfa eftir raflagnateikningum