HSÝN2FB04(AH) - Sýningar og keppni
Sýningar og keppni
Einingafjöldi: 4
Þrep: 2
Forkröfur: HÁRG2FB03DH
Þrep: 2
Forkröfur: HÁRG2FB03DH
Í áfanganum eru keppnisgreinar hárfagsins skoðaðar frá ýmsum hliðum og nokkrar þeirra æfðar. Nemendur áfangans eru misjafnlega langt komnir í faginu og er komið til móts við þá þar sem þeir eru staddir í vali á verkefnum. Þeir þjálfast í að rýna í og fara eftir keppnisreglum, dæma verk sín og annarra, undirbúa sig fyrir keppni og keppa. Nemendur skoða hársýningar með gagnrýnum augum, fá að vera þátttakendur í tilfallandi sýningum og skipuleggja að lokum sýningu á eigin verkum og setja hana upp.
Þetta er valáfangi sem veitir nemendum aukinn styrk og möguleika á að taka þátt í keppnum hérlendis og erlendis. Áfanginn styrkir einnig nemandann gagnvart ýmsum verkefnum hársnyrtibrautarinnar og veitir honum aukna möguleika á að koma sér á framfæri í faginu.
Þekkingarviðmið
- ólíkum keppnisgreinum í hári.
- algengustu reglum í hársnyrtikeppnum.
- undirbúningi fyrir keppni.
- hvernig dómur er unninn.
- hvað einkennir góða hársýningu.
- skipulagningu sýningar.
Leikniviðmið
- afla gagna og leita lausna við hönnun og gerð keppnisverkefna.
- framkvæma valdar keppnisgreinar.
- beita öguðum og skipulegum vinnubrögðum við undirbúning og framkvæmd keppnisverkefna og sýningar.
- kynna verk sitt fyrir áhorfendum og lýsa því hvernig það er unnið.
Hæfnisviðmið
- taka þátt í keppni.
- setja upp sýningu.
- geta unnið innan tímaramma og tekist á við tímapressu.
- eiga auðveldara með að koma fram og tjá sig um verk sín.