BVHR3VT03(AV) - Hreyflar - viðgerðatækni
Hreyflar, viðgerðatækni
Einingafjöldi: 3
Þrep: 3
Forkröfur: BVHR3BV02
Þrep: 3
Forkröfur: BVHR3BV02
Fjallað er um almennar kröfur og kröfur framleiðenda um viðgerðatækni. Farið er yfir verkfæri og tæki sem notuð eru til vélaviðgerða, notkun þeirra og meðferð. Skoðun og mæling á einstökum vélahlutum til að meta ástand þeirra, m.a. slit, áverka og sprungur. Verkefni um ákvörðun ventlatíma.
Þekkingarviðmið
- reglum sem gilda um hreinlæti og skipulag vinnu við vélbúnað hreyfla
- almennum kröfum og kröfum framleiðenda um viðgerðatækni
- verkfærum og tækjum sem notuð eru til vélaviðgerða, notkun þeirra og meðferð
- skoðun og mælingu á einstökum vélahlutum til að meta ástand þeirra, m.a. slit, áverka og sprungur
Leikniviðmið
- mæla og meta ástand hreyfilbúnaðar
- yfirfara kerfi sem tengjast hreyflinum: kælikerfi, loftinntakskerfi og útblásturskerfi
- taka strokklok af hreyfli og setja það á aftur samkvæmt fyrirmælum framleiðanda
- yfirfara ventlabúnað og gera nauðsynlegar athuganir og viðgerðir þessa búnaðar og setja íhluti hans aftur í hreyfilinn
Hæfnisviðmið
- skipta um legur og þétti á sveifarási
- skipta um íhluti hreyfla
- skoða og stilla ventlatíma
- skipta um slífar og stimpla í dísilhreyfli (og ottóhreyfli) og gera þær mælingar og stillingar sem þar eiga við
- gera mælingar og athuganir sem við á til mats á ástandi sveifarbúnaðar hreyfla
- gera við vélbúnað brunahreyfla (ottó og dísil): dælur, kæla, síur, greinar, röralagnir o.fl. þ.h.