BVTM4TM03(AV) - Tjónamat
tjónamat
Einingafjöldi: 3
Þrep: 4
Forkröfur: BVVE2VS05
Þrep: 4
Forkröfur: BVVE2VS05
Nemandinn öðlist þekkingu og færni í greiningu á orsökum og afleiðingum slysa í umferðinni. Nemandinn öðlist færni í skoðun og framsetningu á ýtarlegri skýrslu um tjón á ökutæki, þar sem rannsókn leiðir einnig í ljós orsök áverka út frá afleiðingum. Verkleg æfing og skýrslugerð. Fjallað um mat á skemmdum á ökutæki eða öðru tilefni til viðgerða. Farið í notkun tjónamatskerfisins CABAS. Gerðar verklegar æfingar í notkun einingakerfis. Gerð kostnaðarútreikninga. Gerðar tímaáætlanir vinnuþátta. Útreikningar vegna tjónamats og verkáætlana. Áhersla á að matsmenn tileinki sér ábyrgð, nákvæmni og hlutlægni í starfi og hafi góða yfirsýn yfir verkefnið. Við mat sé þess gætt að fara eftir fyrirmælum framleiðenda um notkun efna og tækja.
Þekkingarviðmið
- tjónamatskerfum sem notuð er í greiningu almennra tjóna
- eðli og skyldum matsmanna við gerð tjónamats
Leikniviðmið
- gera tjónamat á ökutæki ásamt skýrslugerð og framsetningu tjónaskoðana
- gera kostnaðarútreikninga og tímaáætlanir
Hæfnisviðmið
- framkvæma ítarlega skoðun á tjóni sem orðið hefur á ökutæki
- meta ástand einstakra hluta eða kerfa sem eru skemmd eða hafa hugsanlega skemmst
- meta og bera saman íhluti og efnavörur sem tengjast viðkomandi matsverkefni
- útskýra það sem fram kemur í tjónamatsskýrslu