BMVÖ4VÖ03(AV) - Vistvæn ökutæki
Vistvæn ökutæki
Einingafjöldi: 3
Þrep: 4
Forkröfur: BVHR3BO05
Þrep: 4
Forkröfur: BVHR3BO05
Markmið áfangans er að auka þekkingu nemandans á nýorkubifreiðum. Lögð er áhersla á tæknilega uppbyggingu ýmissa kerfa í nýorkubifreiðum, metan, raf- vetnis- og blendingsbifreiðum. Borin saman vinnslusvið og geta hverrar einingar um sig til að draga úr koltvísýrings losun út í umhverfið í akstri og uppbyggingu eininga. Að nemandinn þekki þau öryggisatriði sem snúa að viðhaldi slíks búnaðs, hættur og fyrirbyggjandi viðhald. Lögð er áhersla á tæknilega þekkingu og verklega hæfni til að sinna ökutækjum með slíkan búnað.
Þekkingarviðmið
- hættum við vinnu rafbifreiða
- ýmsum gerðum rafhreyfla
- reglum framleiðanda um meðferð rafbúnaðar með háspennu
- vinnureglu brunahreyfla
Leikniviðmið
- meta ástand búnaðar
- skipta um hluti í búnaði eftir þörfum
Hæfnisviðmið
- lýsa uppbyggingu og virkni metanbifreiða
- lýsa uppbyggingu og virkni vetnisbifreiða
- lýsa uppbyggingu og virkni rafbifreiða
- lýsa uppbyggingu og virkni fjölorkubifreiða
- miðla þekkingu sinni á nýorkubifreiðum til annarra
- lýsa hættum sem geta skapast við vinnu nýorkubifreiða