Fara í efni

IÐNR2IM03(AV) - Iðnreikningur stálsmiða

iðnreikningur, málmiðnaður

Einingafjöldi: 3
Þrep: 2
Forkröfur: Að hafa lokið stærðfræði í grunnskóla með fullnægjandi hætti að mati skólans.
Í áfanganum er lagður grunnur að hagnýtri beitingu eðlisfræðilegra og stærðfræðilegra lögmála í málmiðnaði, með hliðsjón af þekkingu nemendans á efnisfræði, suðuaðferðum, samsetningum og eiginleikum efna. Nemandinn leitar lausna á viðfangsefnum sem upp koma með útreikningum sem tengjast flatarmálsfræði, hlutfallareikningi, efnisnýtingu og fleira. Unnið er með einingar SI kerfisins og ýmsar stærðfræði formúlur sem tengjast greininni. Fjallað um hugtök eins og t.d.: skerhraða, drifhlultföll, þenslu, rúmtak, þrýsting og spennu ásamt álagsþrýstingi smíðaefna, skerkrafti, brotþoli og burðargetu.

Þekkingarviðmið

  • helstu hugtökum og SI einingum sem snerta á viðfangsefnum greinarinnar
  • reikniaðferðum sem beitt er í útreikningum flatar-, rúmmáls- og massareiknga
  • reikniaðferðum sem beitt er í útreikningum hlutfallareiknings og veldisreikninga
  • helstu mælieiningum sem notaðar eru í greininni
  • helstu afleiðingum af reikningsskekkjum

Leikniviðmið

  • reikna rúmmál, massa og flatarmál
  • reikna út efnismagn og nýtni út frá gefnum forsendum
  • reikna hlutföll, skerhraða, þenslu og samdrátt
  • reikna sig á milli einingakerfa (mála og voga)
  • lesa út úr burðarþolstöflum varðandi efnisval

Hæfnisviðmið

  • nýta formúlur og lögmál til lausnaleitar
  • stýra verki af öryggi frá efnisrekka til afhendingar
  • afla sér upplýsinga um eiginleika efna og tækja og lesa úr þeim
Nánari upplýsingar á námskrá.is
Getum við bætt efni síðunnar?