TRÉS2II10(AV) - Trésmíði 3
gluggar, hurðir, inniklæðningar, innréttingar
Einingafjöldi: 10
Þrep: 2
Forkröfur: TRÉS2NT04 og TRÉS2PH10
Þrep: 2
Forkröfur: TRÉS2NT04 og TRÉS2PH10
Í áfanganum lærir nemandinn um innangerð húsa, svo sem afréttingu, lektun útveggja, plötuklæðningar, og uppsetningu innveggja. Nemandinn lærir glugga– og hurðasmíði ásamt frágangi við glugga– og hurðaop. Einnig lærir nemandinn um smíði innréttinga og innihurða, uppsetningu þeirra og frágang. Kennslan er að mestu verkleg þar sem nemendur smíða hluti eftir teikningum og/eða verklýsingum. Áfanginn er ætlaður bæði húsa– og húsgagnasmiðum.
Þekkingarviðmið
- innri uppbyggingu húsa
- frágangi klæðninga, innréttinga, gólfefna, glugga og hurða
- innveggjasmíði
- mismunandi gerðum glugga og hurða
- ólíkum lausnum við smíði innréttinga
Leikniviðmið
- nota og vinna með öryggisbúnað
- velja verkfæri við hæfi og vinna með þau
- rétta af útveggi undir klæðningar
- smíða ólíkar gerðir innveggja
- smíða glugga, hurðir og innréttingar
- áætla efni til smíðavinnu
- vinna eftir teikningum og verklýsingum
Hæfnisviðmið
- smíða eftir teikningum og verklýsingum
- leysa af hendi fjölbreytt verkefni á byggingavinnustað