AÐFE2IB05(MA) - Aðferðafræði matreiðslu
AÐFE
Einingafjöldi: 5
Þrep: 2
Forkröfur: Námssamningur í matreiðslu.
Þrep: 2
Forkröfur: Námssamningur í matreiðslu.
Í áfanganum er lögð áhersla á að sýna fram á hvernig mismunandi matreiðsluaðferðir eiga við mismunandi eiginleika/samsetningu kjöts og fisks. Nemendur kynnast mismunandi vöðvabyggingu og vöðvagerð, þekkja magn bindivefs og viðeigandi hitameðferð með tilliti til vökvataps. Nemendi læri að beita viðeigandi aðferðum við matreiðslu mismunandi hráefnis og að nemandi geti tengt þær við mismunandi eldunaraðferðir. Fjallað er um soðgerð og breytingar sem verða á soðum við eldun. Nemendur læra um allar sígildar undirstöðusósur einnig læra þeir um helstu súpuflokka.
Þekkingarviðmið
- öllum 12 matreiðsluaðferðunum
- kostum og virkni mismunandi matreiðsluaðferða
- vöðvabyggingu og vali á matreiðsluaðferðum
- helstu matreiðsluaðferðir m.t.t. varðveislu næringarinnihalds og hámarksgæða vörunnar
- öllum grunnsoðum, aðferðum, suðutíma og notkunarmöguleikum
- grunnsósum, einkenni, aðferðir, suðutíma og notkun þeirra
- samtímasósum, einkennum og notkun
- grunnsúpuflokkum og sérkennum hvers um sig
Leikniviðmið
- nota rétta matreiðslu- og hitameðferð í matreiðslu
- beita öllum helstu mælitækjum til að tryggja öryggi og gæði vörunar
- beita sértækum vinnubrögðum, verkfærum og tækjum
Hæfnisviðmið
- velja matreiðsluaðferð sem hæfir hinum ýmsu hráefnistegundum
- nota réttrar hitameðferðar í matreiðslu til þess að auka gæði og arðsemi vörunnar
- þróa kunnáttu og leikni í matreiðsluaðferðum
- samþætta notkun tækja, áhalda, hráefnis- og verkferla í soðgerð