EFNA3VC04(AV) - Efnafræði olíu og vökva
Efnafræði olíu og vökva
Einingafjöldi: 4
Þrep: 3
Forkröfur: VÉLF2VE05, EFNA3OH05
Þrep: 3
Forkröfur: VÉLF2VE05, EFNA3OH05
Nemendur kynnast olíum og olíuvörum sem notaðar eru við rekstur aflvéla skipa, s.s. brennsluolíu, smurolíu, smurefni og leysiefni. Nemendur þjálfast í notkun mælitækja og efna til að gera prófanir á smurolíu, kælivatni og ketilvatni og afla þannig upplýsinga til að leggja mat á ástand og gæði vökvanna. Skoðað er bruna- og blossamark olíu, seigjumælingar á olíu, mælingar á basatölu olíu og vatnsmagni í olíu. Fjallað er um fast og fljótandi eldsneyti úr kolefnissamböndum. Vinnsla á olíu er kynnt og mælikvarðarnir oktantala, setantala og dísilindex um brunaeiginleika eldsneytis. Einnig er fjallað um helstu eiginleika ketil- og kælivatns, hvað þarf að varast og hvers vegna.
Þekkingarviðmið
- eldsneytisnotkun, orkutapi og orkunýtingu.
- eldsneytisgerðum, olíutegundum og staðbundnum einkennum olíu og oktantölu, setantölu og dísilindexi.
- fullkomnum bruna og orsökum ófullkomins bruna.
- tæringarvörnum ferskvatns- og sjókerfa.
- útfellingum og áhrifum þeirra.
- helstu eiginleikum smurolíu af mismunandi flokkum og meðferð hennar við daglegan rekstur véla.
- hvernig afla má upplýsinga um ástand smurolía og smurefna með mælitækjum.
- hvernig má greina ástand kæli- og ketilvatns og bregðast við frávikum.
- hvernig má setja niðurstöður mælinga og athugana fram í skýrsluformi.
Leikniviðmið
- greina og meta ástand eldsneytis, smurefna og kælivökva út frá niðurstöðum sérhæfðra prófana.
- gera mælingar og tilraunir með smurefni og kælivökva og skrá niðurstöður skilmerkilega.
- halda utan um mæligögn á öruggan máta.
Hæfnisviðmið
- útskýra staðbundin einkenni olíu og gera grein fyrir vinnslu á fljótandi eldsneyti og helstu eiginleikum þess.
- taka ákvarðanir um viðbrögð ef niðurstöður mælinga gefa tilefni til.
- meta upplýsingar, t.d. samanburð mældra gilda við eðlilegt eða æskilegt ástand.
- setja fram efni og niðurstöður verkefna í skýrslu þar sem fram koma helstu mæliniðurstöður, útreikningar, línurit og ályktanir sem dregnar eru af niðurstöðum mælinga og tilrauna.