RAMV4VC05(FV) - Rafmagnsfræði fyrir vélstjóra 6
Rafmagnsfræði - VC
Einingafjöldi: 5
Þrep: 4
Forkröfur: RAMV3VC04
Þrep: 4
Forkröfur: RAMV3VC04
Nemendur kynnast og vinna með ýmiss konar varnarbúnað í rafkerfum, t.d. bræðivör, sjálfvör, rafalavarnir og aflrofa. Þeir þjálfast í og læra að vinna að uppbyggingu og virkni varnarbúnaðar í rafkerfum almennt og í rafkerfum skipa sérstaklega, ásamt því að öðlast þekkingu á uppbyggingu háspennukerfis landsins allt frá rafölum til notenda. Kerfið er kynnt með þeim hætti að farið er í gegnum teikningar af virkjunum, tengivirkjum, raforkudreifingu og öðrum tengdum búnaði raforkukerfisins. Æskilegt er að farnar verði vettvangsferðir í orkuver og dreifistöðvar.
Þekkingarviðmið
- uppbyggingu og vinnumáta eins og þriggja fasa spenna.
- uppbyggingu og virkni helstu íhluta í varnarbúnaði raforkukerfa almennt og í skipum.
- uppbyggingu raforkukerfis landsins og einstökum hlutum þess.
- hvernig varnarbúnaður rafkerfa vinnur.
Leikniviðmið
- tengja og bilanagreina spenna.
- útskýra uppbyggingu og vinnumáta spenna.
- útskýra uppbyggingu og virkni helstu íhluta í varnarbúnaði raforkukerfa.
- útskýra uppbyggingu raforkukerfis landsins.
- einangra og jarðtengja hluta raforkukerfa áður en unnið er við þau.
Hæfnisviðmið
- stjórna stórum raforkukerfum skipa.
- vinna með öðrum að þjónustu við rafkerfi landsins.
- greina bilanir í varnarbúnaði rafkerfa.
- lýsa og gera skýra grein fyrir uppbyggingu og virkni spenna og varnarbúnaði þeirra.