VÉLF3VC04(CV) - Vélfræði 3
Vélfræði - VC
Einingafjöldi: 4
Þrep: 3
Forkröfur: VÉLF2VE05
Þrep: 3
Forkröfur: VÉLF2VE05
Nemendur öðlast þekkingu og skilning á uppbyggingu á kötlum og búnaði sem þeim fylgir. Farið er yfir virkni katla og þau öryggisatriði sem nauðsynleg eru til að rekstur þeirra standist kröfur og sé sem öruggastur. Nemendur fá þjálfun í að reikna út nýtni, hitaflöt og loftþörf katla og þjálfast í að vinna úr niðurstöðum sem fást úr reykgreiningu. Nemendur öðlast þekkingu á gufu og eðli hennar, t.d. hvað átt er við með eimunarvarma, rökum eim, mettuðum eim og yfirhituðum eim.
Þekkingarviðmið
- mismunandi gerðum eimkatla.
- uppbyggingu eimkatla, einstökum þáttum í gerð þeirra og búnaði sem þeim tengist.
- stjórn- og öryggisbúnaði sem tengist rekstri eimkatla.
- mikilvægi þess að ketilvatnið valdi ekki skaða á katlinum.
- þeim þáttum sem ráða nýtni katla.
- aðferðum við hreinsun og viðhald á eimkötlum.
- aðferðum við reykgreiningu.
Leikniviðmið
- útskýra mismunandi gerðir eimkatla og búnað sem þeim fylgir.
- reikna nýtni katla, hitaflöt þeirra og loftþörf.
- útskýra eimunarvarma, rakan eim, mettaðan eim og yfirhitaðan eim.
- nota búnað sem hreinsar reyk frá kötlum.
- framkvæma reykgreiningu.
- annast og meðhöndla allan öryggisbúnað katla.
Hæfnisviðmið
- sjá um rekstur eimkatla.
- kynda ketil með þeim hætti að sem best nýting náist við rekstur hans.
- lýsa með skýrum hætti hvernig katlar eru sóthreinsaðir.
- stilla ketil með hliðsjón af niðurstöðum reykgreininga.