REGL4RD05(BV) - Reglunartækni 2
dísilvélar, reglunarbúnaður, virkjanir
Einingafjöldi: 5
Þrep: 4
Forkröfur: REGL2HR05, VÉLF3VC04
Þrep: 4
Forkröfur: REGL2HR05, VÉLF3VC04
Nemendur öðlast ítarlega þekkingu í reglunartækni, svo sem P-, I- og D-þætti reglna, reglunarbúnaði fyrir vatnsafls- og jarðvarmavirkjanir og reglunarbúnaði dísilvéla. Þeir kynnast og verða færir um að nýta sér hugtök eins og stöðugleikafall og snúningshraðafall og geta í framhaldinu annast stillingar á algengum stjórn- og eftirlitsbúnaði aflvéla.
Þekkingarviðmið
- stöðugleikafalli fyrir vélar í samkeyrslu.
- gildi snúningshraðafalls gagnvart samkeyrslueiginleikum véla.
- hlutverki aðgerðamagnarans í uppbyggingu rafeindareglna og helstu rásum sem tengjast honum.
- eiginleikum mismunandi framkvæmdarliða (loka) stöðureglna (positioner) og breytna (I/p og p/I).
- sjálfstýringu í skipi.
- aukabúnaði í nútímareglum dísilvéla.
Leikniviðmið
- teikna reglunarbúnað með röskunarmælingu.
- reikna út P-, I- og D-þætti reglna eftir ZN bæði fyrir tengda og rofna slaufu, stöðu- og rásferil.
- notfæra sér leiðbeiningar framleiðenda (t.d. Woodward) varðandi innstillingu á gangráðum dísilvéla.
- teikna og reikna stöðugleikafall (f, P-fall) fyrir vélar í samkeyrslu (speed droop, ójöfnunargráða).
- gera sér grein fyrir gildi snúningshraðafalls varðandi samkeyrslueiginleika og beita stærðfræðilegum aðferðum á fyrrnefndar rásir.
Hæfnisviðmið
- leggja sjálfstætt mat á stöðu búnaðar og ástand og hvernig bregðast á við frávikum.
- stjórna og stilla vélbúnað sem byggir á flókinni reglunartækni.
- beita stærðfræðilegum aðferðum til að skýra P-, I- og D-þætti reglna eftir ZN bæði fyrir tengda og rofna slaufu, stöðu- og rásferil.