RAMV4VD05(AV) - Rafmagnsfræði 7 fyrir vélstjóra
Rafmagnsfræði - VD
Einingafjöldi: 5
Þrep: 4
Forkröfur: REIT4SL05, RAMV3RF05
Þrep: 4
Forkröfur: REIT4SL05, RAMV3RF05
Nemendur fá þjálfun í keyrslu samfasavéla, bæði sem sjálfstæðra rafala og í samkeyrslu. Þeir fá þjálfun í tengingum og keyrslu rafmótora og notkun mismunandi hraðastýriaðferða. Nemendur kynnast þeim þáttum sem lúta að uppbyggingu og virkni rafvéla, umhirðu þeirra og bilanagreiningu.
Þekkingarviðmið
- algengustu gerðum rafvéla, uppbyggingu þeirra og virkni og við hvaða aðstæður þær eru helst notaðar.
- algengustu orsökum rafmagnsbilana í rafvélum.
- aðferðum við hraðastýringar rafvéla og á hverju þær byggjast.
- týristorastýringu fyrir jafnstraumsmótora.
- tíðni- og/eða vektorastýringu fyrir riðstraumsmótora.
- af hverju mismunandi fasvik álagsins gerir ólíkar kröfur til segulmögnunar.
- mismunandi hlutverkum spennustillis og gangráðs.
- samfösun og samkeyrslu.
- jöfnun raun- og launálags milli rafala í samkeyrslu.
Leikniviðmið
- gera grein fyrir og útskýra uppbyggingu og vinnumáta helstu gerða rafvéla.
- velja viðeigandi hraðastýribúnað m.t.t. viðfangsefnis.
- framkvæma helstu mælingar sem tengjast rafmótorum og hraðabreytum.
- keyra rafala bæði staka og í samkeyrslu.
Hæfnisviðmið
- greina bilanir í rafvélum.
- tengja rafmótora við net með tilheyrandi varnarbúnaði.
- tengja og keyra rafmótora með mismunandi hraðastýringum.
- fasa saman rafala og keyra.
- sjá um raforkuframleiðslu með rafölum.
- stjórna og leiðbeina öðrum við störf og viðgerðir á rafvélum og varnarbúnaði þeirra.
- ákveða hvaða mælitækni skal nota hverju sinni til bilanagreiningar.
- útskýra kosti hraðastýringa rafmagnsvéla galla og takmarkanir.
- útskýra orsakir bilunar og aðgerðir til að gera við bilunina.