MEIS4ST06(AV) - Stjórnun
Stjórnun
Einingafjöldi: 6
Þrep: 4
Þrep: 4
Viðfangsefni áfangans miðast við undirbúa fólk fyrir stjórnunarstörf í samfélaginu, gera það meðvitað um mikilvægi sjálfbærni og samfélaga ábyrgð. Fjallað er um mikilvægi góðarar stjórnunar og að ákvarðanir séu teknar að vel athuguðu máli. Farið er í grunnhugtök og kenningar í stjórnun. s.s. skipurit, valddreifingu, markmiðasetningu og hvatningu. Nemandanum eru kynnt gildi stjórnunar og skipulagningar fyrir einstaklinginn og fyrirtækið, hann fær innsýn í hlutverk, verksvið og ábyrgð stjórnenda fyrirtækja í mannauðsstjórnum og verkefnastjórnun. Sérstök áhersla er lögð á persónuþróun, nemandinn lærir að meta og þekkja kosti sína og galla, tileinka sér verkefna- og tímastjórnun og setja sér markmið.
Þekkingarviðmið
- kostum sínum og göllum.
- hlutverki sínu í hópavinnu.
- mikilvægi stjórnunar fyrir einstaklinginn, fyrirtækið og samfélagið.
- helstu stjórnunarkenningum og stílum.
- mikilvægi valddreifingar.
- mikilvægi markmiðasetningar.
- undirgreinum stjórnunar.
- helstu skipuritum um dreifingu valds og ábyrgðar.
- grunnatriðum mannauðsstjórnunar.
- verkefnastjórnun.
Leikniviðmið
- setja sér markmið.
- skipuleggja tíma sinn.
- stýra fundum
- taka starfsmannaviðtöl.
- skrifa fundagerðir.
- gera svót greiningu.
- setja saman verkáætlun.
Hæfnisviðmið
- fjalla um hlutverk og störf stjórnanda með gagnrýnum augum.
- rökræða helstu stjórnunarstíla.
- leysa af hendi starfsmannaviðtöl.
- vera ábyrgur fyrir fundarstjórnun.
- meta vandamál með gerð SVÓT greiningar.
- taka þátt í skipulagningu á verkefni með gerð verkáætlunar og geta dregið saman upplýsingar til úrvinnslu og upplýstrar ákvörðunartöku.
- öðlast skilning á hlutverki stjórnanda.