NORS2NB05 - Norska fyrir sjálfstæðan notanda I
menning, skilningur og málnotkun I
Einingafjöldi: 5
Þrep: 2
Þrep: 2
Í áfanganum er lögð áhersla á lestur fjölbreyttra texta til að auka lesskilning og orðaforða. Undirstöðuatriði norskrar málfræði eru rifjuð upp og þau æfð með gagnvirkum æfingum á netinu, rituðu og mæltu máli. Allir fjórir færniþættirnir, lestur, ritun, hlustun og tal, eru þjálfaðir markvist auk þess sem nemendum er leiðbeint í notkun orðabóka og annarra hjálpargagna í tungumálanáminu.
Þekkingarviðmið
- almennum orðaforða sem tengist efni áfangans
- helstu málfræðiatriðum í norsku og nýtt sér það bæði í rituðu og mæltu máli.
- helstu einkennum norskrar tungu í framburði og rituðu máli
- notkun hjálpargagna s.s. orðabóka og leiðréttingarforrita á netinu
- samspili og þróun norðurlandamálanna
Leikniviðmið
- lesa fjölbreytta texta sem tengjast efni áfangans
- skilja talað mál um kunnugleg og minni kunnugleg efni
- tjá sig um valin málefni og geti tekið þátt í samræðum
- rita texta byggða á efni áfangans og gera orðalag texta að sínu
- fara eftir grundvallarreglum sem gilda um ritað mál
- nota upplýsingatækni og hjálpargögn í tungumálanámi
Hæfnisviðmið
- skilja daglegt mál, svo sem samræður og fjölmiðlaefni, t.d. fréttir og norska sjónvarpsþætti og nýta sér á mismunandi hátt
- nýta grundvallaratriði norskrar málfræði í ritun og tali
- skrifa læsilega texta um ýmis málefni og nýta þann orðaforða sem áfanginn byggir á
- nota viðeigandi orðalag í samskiptum
- þróa með sér aga, metnað, ábyrgð og jákvæðni í vinnubrögðum