NORS2NC05 - Norska fyrir sjálfstæðan notanda II
menning, skilningur og málnotkun II
Einingafjöldi: 5
Þrep: 2
Þrep: 2
Markmið áfangans er efla nemandann enn frekar í að nota norsku i samskiptum við Norðmenn og aðra Norðurlandabúa sem og að leita sér efnis á norsku í námi, leik og starfi. Allir fjórir færniþættirnir, lestur, ritun, hlustun og tal, eru þjálfaðir markvist auk þess sem nemenda er leiðbeint með notkun orðabóka og annarra hjálpartækja til tungumálanáms á netinu.
Þekkingarviðmið
- norsku tal- og skrifmáli
- norskri menningu, og tengslum tungumálanna
- helstu málfræðiatriðum í norsku og nýtt sér það bæði í rituðu og mæltu máli.
- notkun hjálpargagna s.s. orðabóka og leiðréttingarforrita á netinu
Leikniviðmið
- lesa fjölbreytta texta sem tengjast efni áfangans
- hlusta á norsku og skilja að mestum hluta það sem fram fer
- tjá sig um valin málefni og geti tekið þátt í samræðum
- rita texta byggða á efni áfangans og gera orðalag texta að sínu
- lesa sér til gagns og ánægju texta um margvísleg málefni
- nota upplýsingatækni og hjálpargögn í tungumálanámi
Hæfnisviðmið
- skilja daglegt mál, svo sem samræður og fjölmiðlaefni, t.d. fréttir og norska sjónvarpsþætti og nýta sér á mismunandi hátt
- nýta grundvallaratriði norskrar málfræði í ritun og tali
- skrifa læsilega texta um ýmis málefni og nýta þann orðaforða sem áfanginn byggir á
- nota viðeigandi orðalag í samskiptum
- þróa með sér aga, metnað, ábyrgð og jákvæðni í vinnubrögðum
- auka meðvitund um eigin færni í tungumálinu