LOGS1PS02(AV) - Logsuða og logskurður
Plötusuða
Einingafjöldi: 2
Þrep: 1
Forkröfur: engar
Þrep: 1
Forkröfur: engar
Í áfanganum lærir nemandinn að umgangast gashylki, logsuðu- og logskurðartæki. Hann lærir að fylgja suðulýsingu, logsjóða plötujárn í suðustöðum PA, PC og PF með I-rauf. Nemandinn fær þjálfun í að lóða og logskera fríhendis og bregðast rétt við ef hættu ber að höndum. Farið er yfir brunahættu vegna loga og neistaflugs, sprengihættu vegna áhrifa acetýlens á eir og áhrifa súrefnis á olíu og feiti og vegna íláta sem innihalda eða hafa innihaldið eldfim efni. Farið er í undirstöðuatriði heilsuverndar, hlífðarfatnað og hlífar.
Þekkingarviðmið
- mikilvægi hlífðarfatnaðar og hlífa ásamt heilsuvernd á vinnusvæði
- gashylkjum, meðferð þeirra við geymslu og flutning, litamerkingum og frágangi topploka
- notkunarsviði acetýlens og súrefnis
- suðuloga, blöndu hans og hitastigi
- áhrifum kolandi loga, súrefnisríks og hlutlauss loga á suðupollinn
- gerðum og samsetningu raufa og áhrifum þeirra á spennu
- ástæðum þess að ekki sé hægt að logskera alla málma
- virkni lóða og lóðdufts
- staðlinum ÍST EN 287-1 um hæfnispróf
- staðlinum ÍST EN 5 817 um mat á suðum og suðugalla
Leikniviðmið
- nota suðulóð og lóðduft
- setja upp mæla á hylki, slöngur og sköft
- sjóða 1 – 3 mm plötustál með I-rauf í PA, PF og PC
- stilla réttan vinnuþrýsting
- logskera stál fríhendis
- sjóða stúfsuðu í plötu í stöðum PA, PC, og PF
- nota hlífðarfatnað og öryggisbúnað
Hæfnisviðmið
- velja hlífðarbúnað og hlífar í samræmi við aðstæður
- stilla suðutæki í samræmi við notkun
- velja réttan vinnuþrýsting
- velja suðuspíssa samkvæmt efnisþykkt