RAMV2SR04(AV) - Rafmagnsfræði 3 fyrir vélstjóra
riðstraumsvélar, segulliðar
Einingafjöldi: 4
Þrep: 2
Forkröfur: RAMV2MJ04
Þrep: 2
Forkröfur: RAMV2MJ04
Nemendur öðlast fullnægjandi þekkingu á rafkerfum skipa með allt að 750 kW aðalvél til að þeir geti gegnt stöðu yfirvélstjóra og tileinkað sér upplýsingar með lestri teikninga af rafkerfi slíkra skipa. Sérstök áhersla er lögð á tengingar riðstraumsvéla og fylgibúnaðar þeirra í gegnum rofabúnað og rafeindabúnað, s.s. mjúkræsi og tíðnibreyti auk þess sem veitt er
þjálfun í framkvæmd bilanaleitar með mælitækjum.
Þekkingarviðmið
- uppbyggingu og hlutverki segulrofa og grunntengingum hans
- gerð, uppbyggingu og vinnumáta þriggja fasa riðstraumsrafala og mótora
- samfösun riðstraumsrafala
- tengingum og varnarbúnaði mótora og rafala
- ræsibúnaði rafmótora með Y/D ræsi og mjúkræsi
- hraðastjórnun riðstraumsmótors og tengingu við net
- mismunandi möguleikum til hraðastýringa þriggja fasa riðstraumsmótora
- virkni og uppbyggingu einfasa riðstraumsmótora og notkunarsvið þeirra
- uppbyggingu riðstraumstöflu í skipum, búnaði og skilyrðum til samfösunar þriggja fasa rafala við raforkunet
- raflagnateikningum lítill skipa
Leikniviðmið
- reikna út afl, tap og nýtni í ein- og þriggja fasa mótorum og rafölum
- nota hefðbundinn samfösunarbúnað við samfösun
- velja og stilla varbúnað fyrir rafmótora
- lesa út úr einföldum raflagnateikningum
Hæfnisviðmið
- tengja og stilla riðabreyta
- tengja þriggja fasa mótor rétt miðað við spennu (D/Y)
- fasa rafala inn á net og deila raun- og launálagi
- finna bilun í riðstraumsmótor, fasarof eða útleiðslu
- tengja þriggja- og einfasa skammhlaupsmótora við net