STÝR1LV04(AV) - Stýritækni loft og vökva
loft- og vökvafræði
Einingafjöldi: 4
Þrep: 1
Forkröfur: VÉLS1GV05
Þrep: 1
Forkröfur: VÉLS1GV05
Í áfanganum öðlast nemandinn grunnþekkingu á loft-, og vökvastýrðum kerfum, meðhöndlun loftsins (raka, síun, hitastig) og uppbyggingu vökva, helstu þætti þeirra, hlutverk og notkunarsvið. Hann þjálfast í stillingu þrýstings, notkun og stillingu tímaliða og hraða. Fjallað er um helstu atriði í uppbyggingu þrepastýrikerfa og raktar teikningar af stýrikerfum.
Nemandinn fær undirstöðuþekkingu og skilning á hlutverki og notkun stýritækninnar, þannig að hann verði fær um að þjóna loft- og vökvastýrð kerfi, setja upp kerfi eftir teikningum og framkvæma einfaldar viðgerðir. Gerðar eru verklegar æfingar í uppbyggingu og notkun einfaldra loft- og vökvastýrikerfa.
Þekkingarviðmið
- táknmyndum sem notuð eru í teikningum samkvæmt ISO-staðli
- samhengi flatar, þrýstings og krafts
- loftþjöppum og vökvadælum, tjökkum, lokum og öðrum búnaði tengdum loft- og vökvakerfum
- öryggisþáttum við meðhöndlun á lofti og vökva undir þrýsting
- hraðastillingum strokka
- notkun tímaliða (með stillanlegum rof- og tengitíma)
- áhvílandi stýrimerkjum
- síum og hreinsibúnaði
- helstu tegundum lagna, rör, slöngur, festingar og tengi
- vökvum sem notaðir eru á vökvakerfi og eðliseiginleikum þeirra (seigju, seigjutölu)
- umhverfisáhrifum vökva, förgun og endurvinnslu
- helstu aðferðum við hreinsun á lögnum
Leikniviðmið
- setja upp og annast tengingar einfaldra stýrikerfa
- gera tengimyndir af hálf- og alsjálfvirkum raðferlum strokka
- lesa kerfisteikningar og nota handbækur
- gera starfsrit samkvæmt tengimyndum
- nota handbækur
Hæfnisviðmið
- stjórna loft- og þrýstivökvakerfum á öruggan hátt
- lofttæma lokuð vökvakerfi
- finna og lagfæra bilanir í loft- og þrýstivökvakerfum
- útskýra virkni einfaldra stýrikerfa út frá teikningum
- útskýra tengimyndir, starfsrit og stöðurit
- meta hvort uppgefnar stærðir á lögnum séu réttar
- meta stærð vökvageymis og lagna að honum og frá
- meta orkutap í kerfum