IÐNT3AC04 - Teiknifræði málmiðna
AutoCad, málsetningaraðferðir, smíða- og lagnateikningar
Einingafjöldi: 4
Þrep: 3
Forkröfur: GRUN2ÚF04
Þrep: 3
Forkröfur: GRUN2ÚF04
Nemendur eiga að öðlast þjálfun í lestri og gerð fagteikninga samkvæmt gildandi stöðlum og reglum um véla- og málmsmíðateikningar. Nemendur fá undirstöðufærni í að lesa og vinna eftir teikningum á vinnustað. Þeir geta teiknað og útfært smíða- og lagnateikningar fyrir einstök verkefni. Teiknað samkvæmt stöðlum sem notaðir eru við almennar véla- og smíðateikningar: Lærð er grunnvinna með hornréttar fallmyndir, mælikvarða, strikagerðir, smiðsmiðaðar reglur um málsetningu , snið og skástrikun, skrúfugang og samsetningaeiningar, hrýfismerki, málvik, og suðutákn. Meðhöndlun teikninga, merkingar og vistun. Grundvallarreglur um gerð útflatningsteikninga. Unnið er í tölvum og grunnþekking þjálfuð í AutoCad.
Þekkingarviðmið
- lestri og gerð fagteikninga samkvæmt gildandi stöðlum og reglum um véla- og málmsmíðateikningar
- gerð teikninga og útfærslu smíða- og lagnateikninga fyrir einstök verkefni
- gerð teikninga samkvæmt stöðlum sem notaðir eru við almennar véla- og smíðateikningar
- grunnvinnu með hornréttar fallmyndir, mælikvarða, strikagerðir, smiðsmiðaðar reglur um málsetningu, snið og skástrikun, skrúfugang og samsetningaeiningar, hrýfismerki, málvik, og suðutákn
- meðhöndlun teikninga, merkingar og vistun
- grundvallarreglum um gerð útflatningsteikninga
- AutoCad og notkun þess
Leikniviðmið
- lesa og teikna almennar teikningar sem gerðar eru eftir gildandi stöðlum
- teikna stöðluð form fyrir staðlaða íhluti (legur, pakkningar, tannhjól o.s.frv.)
- teikna útflatninga af nokkrum þrívíðum formum, m.a. Breytistykkjum úr sívölum í rétthyrnt
Hæfnisviðmið
- velja stærð teiknipappírs, staðsetja teikningu, ákvarða hæfilegan mælikvarða og uppsetningu
- setja inn nauðsynleg snið og málsetja teikningu svo hún sé nothæf til að smíða eftir
- nýta upplýsingar frá framleiðendum til að teikna stöðluð form fyrir staðlaða íhluti (legur, pakkningar, tannhjól o.s.frv.)
- nýta teikningar til að gera efnis- og tækjalista