RAMV3RF04(AV) - Rafmagnsfræði 4 fyrir vélstjóra
fasvik, rafmagnsfræði riðstraums, vektormyndir
Einingafjöldi: 4
Þrep: 3
Forkröfur: RAMV2SR04, STÆF2VH05
Þrep: 3
Forkröfur: RAMV2SR04, STÆF2VH05
Þessi áfangi fjallar um grundvallaruppbyggingu og eðli riðstraums og þau lögmál og hugtök
sem þar eiga við. Nemendur öðlast þekkingu og færni við að beita vektoramyndum og útreikningi í riðstraumsrásum og öðlast þannig skilning á orsökum og áhrifum fasviks í riðstraumsrásum bæði, einfasa og þriggja fasa, ásamt því að öðlast betri skilning á raforkukerfum og geti annast rekstur þeirra.
Þekkingarviðmið
- grundvallarhugtökum riðstraumsfræðinnar
- fasviki í riðstraumsrásum og orsökum þess
- notkun vektora við að ákvarða stærðir í riðstraumsrásum
- notkun hornafalla til að reikna út stærðir í vektoramyndum
- þrískiptingu afls í riðstraumsrásum
- aðferðum við að leiðrétta fasvik í riðstraumsrásum
Leikniviðmið
- framkvæma útreikninga á einfasa riðstraumsrásum með blönduðu álagi
- framkvæma útreikninga á þriggja fasa riðstraumsrásum með og án fasviks
Hæfnisviðmið
- finna orsök óeðlilegs fasviks í skipum
- reikna út stærðir þétta sem þarf til að leiðrétt fasvik