VÉLS2TK04(AV) - Vélstjórn 3
teikningar og kerfi
Einingafjöldi: 4
Þrep: 2
Forkröfur: VÉLS2KB05, GRUN1FF04
Þrep: 2
Forkröfur: VÉLS2KB05, GRUN1FF04
Nemendur læra hvernig nota má teikningar og leiðbeiningabæklinga til að öðlast þekkingu á uppbyggingu einstakra vélarhluta og kerfa.
Þeir kynnast eldsneytisolíum og kerfum, smurolíum og smurolíukerfum, krosshausvélum og langbulluvélum með tilliti til brennslu svartolíu, notkun á mismunandi smurolíum.
Nýtingu glataðs varma frá vélum með varmaskiptum og afgaskötlum.
Þeir öðlast þekkingu á tæringarvörnum ferskvatns- og sjókerfa um borð í skipum ásamt því að þekkja helstu gerðir skilvindna og kunna skil á skilvindukerfum, austur- og kjölfestukerfum og þeim reglum sem um þær gilda (MARPOL).
Þekkingarviðmið
- nútímaeldsneytiskerfi sem hönnuð eru fyrir gasolíu- og svartolíu-meðhöndlun og geti útskýrt tilgang hvers einstaks þáttar í kerfunum með aðstoð teikninga
- helstu eiginleiku eldsneytisolíu af mismunandi flokkum ásamt grundvallaratriðum um skiljun
- nútíma smurolíukerfi og geti útskýrt tilgang hvers einstaks þáttar í kerfinu með aðstoð teikninga
- helstu eiginleikum smurolíu af mismunandi flokkum og meðferð hennar við daglegan rekstur véla
- nútíma kælivatns- og sjókælikerfi og geti útskýrt tilgang hvers einstaks þáttar í kerfunum með aðstoð teikninga
- helstu eiginleikum fersk- og saltvatns til kælingar og meðhöndlun þess við daglegan rekstur véla
- helstu orsökum og skilyrðum tæringar í skipum og vélakerfum ásamt þeim aðgerðum sem beitt er til varnar tæringu
- gerð og uppbyggingu krosshausvéla
Leikniviðmið
- nota teikningar og leiðbeiningabæklinga til að átta sig á uppbyggingu vélahluta og búnaðar og hvernig þeir vinna
- rekja og átta sig á samhengi kerfa í vélarúmi
Hæfnisviðmið
- annast rekstur skilvindukerfa í eldsneytis- og smurolíkerfum
- annast rekstur aðal- og ljósavéla í minni skipum og sinna öllu fyrirbyggjandi viðhaldi á þeim
- mæla og meta ástand kælivatns m.t.t tæringar