VÉLT3ÁL04(AV) - Véltækni 1
lofttemprunarkerfi, miðflóttakraftsdæla, skrúfulínurit, álagslínur dieselvéla
Einingafjöldi: 4
Þrep: 3
Forkröfur: KÆLI2VK05
Þrep: 3
Forkröfur: KÆLI2VK05
Megináhersla er lögð á nemandinn öðlist færni og þekkingu á vélbúnaði með verkefnavinnu og greiningu mældra niðurstaðna. Sérstök áhersla er á varmafræði, varmajöfnuð og fræðilegar rannsóknir á aflfærslu til framdriftar skipa. Nemandinn þjálfast í rekstri vélkerfa með því að gera varmafræðilegar athuganir og vinna úr þeim. Einnig er unnið að rannsóknum á varmaskiptum. Nemandinn á að nýta sér námsefni undanfara og áunna fagþekkingu til að vinna verklegar æfingar og tilraunir sem hafa það hlutverk að auka skilning á einstökum þáttum fræðigreinarinnar.
Þekkingarviðmið
- nýtni og afldreifingu miðflóttakraftsdælu
- dælukennilínum, mótstöðukennilínum og stjórnun rúmtaksstreymis fyrir miðflóttaaflsdælu
- rannsóknum á varmafræðilegum eiginleikum varmaskiptis
- varmajöfnuði dísilvéla
- álagslínuriti aðalvélar skips
- skrúfulínuriti
Leikniviðmið
- nota díagrammrannsóknir til að greina bilanir í dieselvélum
- gera varmajöfnuð á dieselvél og leggja mat á niðurstöður
- lesa úr niðurstöðum varmajöfnuðar og varmaskipta vélbúnaðar
- setja niðurstöður mælinga og athugana fram í skýrsluformi
- afla upplýsinga um ástand lofttemprunarkerfa og vinna úr þeim
Hæfnisviðmið
- taka ákvarðanir um viðbrögð ef niðurstöður mælinga á vélbúnaði gefa tilefni til
- setja fram helstu atriði æfingarinnar og niðurstöður í skýrslu þar sem fram koma helstu mæliniðurstöður, útreikningar, línurit
- draga ályktanir af niðurstöðum rannsóknaræfinga og gera tillögur að úrbótum