RÖKR3VC04(AV) - Rökrásir 2
Rökrásir - VC
Einingafjöldi: 4
Þrep: 3
Forkröfur: RÖKR3IS04
Þrep: 3
Forkröfur: RÖKR3IS04
Nemendur öðlast þekkingu á uppbyggingu og notkun iðntölva PLC eða PAC og notkunarmöguleikum þeirra. Þeir fá þjálfun í forritun samkvæmt staðli IEC 61131-3 um forritunarmál, hönnun og greiningu á einföldum iðnstýrikerfum og tengingum þeirra. Áhersla er lögð á að nemendur fái innsýn í forritanlega örgjörva og hvernig hægt er að forrita þá og nota t.d í skynjararásum. Nemendur fá einnig innsýn í skynjaratækni sem er notuð með iðntölvum PLC og PAC.
Þekkingarviðmið
- flæðiritum (Sequential Function Chart), stigaritum (Ladder) og rökrásaritum (Function Block Diagram).
- skipanalistum (Instruction List).
- forritunarmálum fyrir iðntölvur (Structured Text).
- algengum stærðum hliðrænna merkja að og frá iðntölvu og samskiptaformum milli einmenningstölvu og iðntölvu.
- skjámyndakerfum fyrir iðntölvur.
- viðbótar- og tengibúnaði, s.s. rofum, nándarnemum, hvernig þeir tengjast tölvunni og hvernig vinnuvélin, sem iðntölvan á að stjórna tengist henni.
Leikniviðmið
- forrita örgjörva fyrir skynjararásir.
- finna bilanir í iðnstýrikerfum.
- mæla og greina skynjara.
- nota iðntölvur til að stjórna tækjum og búnaði.
- teikna upp myndir og kalla fram raunverulega atburði, magn, hita, stöðu o.fl. frá iðntölvu.
Hæfnisviðmið
- rekja sig í gegnum forrit og leita uppi villur eða truflanir.
- skilgreina og tengja ýmsan viðbótarbúnað við iðntölvur.
- setja upp skjákerfi með SCADA.
- prófa skynjara og stýringu með forritanlegum örgjörva.