MARG1GH05(AV) - Grafísk uppsetning, vektorteikning og ferilmappa
Grafísk uppsetning, vektorteikning
Einingafjöldi: 5
Þrep: 1
Forkröfur: engar
Þrep: 1
Forkröfur: engar
Nemendur kynnast grunnatriðum í grafískri uppsetningu og vektorteikningu og auka skilning sinn á mikilvægi skipulagðrar hugsunar við grafíska framsetningu m.a. í samhengi við gerð ferilmöppu til kynningar á eigin verkum. Áhersla er lögð á að nemendur kynnist forritum og fjölbreyttum möguleikum þeirra sem hægt er að nýta við skapandi úrvinnslu verka sem byggja á stafrænni tækni. Nemendur kynnast möguleikum vektorteikningar og fá þjálfun í að vinna með samspil mynda og texta. Nemendur þjálfast í ferilmöppugerð sem mögulegt er að nýta vegna umsóknar um framhaldsnám á háskólastigi.
Þekkingarviðmið
- hönnunarforritum og möguleikum þeirra til skapandi úrvinnslu
- grunnatriðum í grafískri uppsetningu
- grunnatriðum í vektorteikningu
- samspili mynda og texta í grafískri framsetningu
- hvernig gengið er frá stafrænu efni
Leikniviðmið
- vinna með vektorteikningu
- vinna með myndir og texta í hönnunarforritum
- velja viðeigandi forrit til að setja verkefni sín fram
Hæfnisviðmið
- vinna á sjálfstæðan og skapandi hátt með margvísleg forrit við vinnslu og framsetningu á eigin hugmyndum og verkum
- fullvinna verk með viðeigandi hætti með tilliti til þess á hvaða formi verkið skal birt