LISA1HB05(AV) - Listasaga frá hellamálverkum fram að iðnbyltingu
Hellamálverk, iðnbylting
Einingafjöldi: 5
Þrep: 1
Forkröfur: engar
Þrep: 1
Forkröfur: engar
Nemendur kynna sér helstu stílbrigði og þróun í lista- og hönnunarsögu, á heimsvísu og á Íslandi, frá öndverðu fram að iðnbyltingu. Markmið áfangans er að nemendur geri sér grein fyrir eðli þeirra þátta sem mótað hafa listsköpun mannsins í gegnum tíðina. Helstu þræðir lista- og hönnunarsögunnar eru raktir og settir í samhengi við samfélagsbreytingar á hverjum tíma.
Nemendur nýta sér fjölbreytta miðla við upplýsingaleit, þekkingaröflun og framsetningu verkefna.
Þekkingarviðmið
- helstu stíleinkennum og stefnum í listasögu frá hellamálverkum til og með iðnbyltingu og helstu hugtökum sem tengjast þeim
- menningarlegri og hugarfarslegri þróun og margbreytileika í mannlegu samfélagi
- hvernig listsköpun er nátengd samfélagslegum veruleika: landfræði, áhrif gróður og veðurfar, tækniframfarir á hverjum stað á hverjum tíma.
- samfélagslegu, menningarlegu og efnahagslegu gildi listsköpunar
- tengslum heimspeki, myndlistar og hönnunar
Leikniviðmið
- beita sjálfstæðum vinnubrögðum og tileinka sér gagnrýna hugsun
- nota fagbókmenntir, tímarit, veraldarvefinn og fjölmiðla í upplýsingaöflun og gagnasöfnum
- vinna á sjálfstæðan og skapandi hátt undir leiðsögn kennara að afmörkuðum verkefnum
- nota hugtök sem tengjast faginu til að tjá skoðanir sínar og rökstyðja þær
- nota mismunandi miðlunarleiðir í framsetningu verkefna
Hæfnisviðmið
- gera grein fyrir niðurstöðum verkefna sinna á fjölbreyttan, áhugaverðan og gagnrýninn hátt
- bera saman, finna tengsl og draga ályktanir af listasögunni og þróun hennar og hvaða áhrif listsköpun hefur á samfélag á hverjum tíma
- sýna sjálfstæði við útfærslu verkefna, einn og í hópavinnu undir leiðsögn kennara
- setja listasöguna í menningarlegt og félagslegt samhengi og geri sér grein fyrir hvaða áhrif staðhættir, náttúruauðlindir, tækniframfarir og stjórnarfar hafa á listræna sköpun/myndlist
- taka þátt í samvinnu með umburðarlyndi og virðingu fyrir öðrum að leiðarljósi
- ræða um verkefni sín við aðra með almennri ígrundun og samanburði