Fara í efni

Listasaga frá hellamálverkum fram að iðnbyltingu LISA1HB05

Nemendur kynna sér helstu stílbrigði og þróun í lista- og hönnunarsögu, á heimsvísu og á Íslandi, frá öndverðu fram að iðnbyltingu. Markmið áfangans er að nemendur geri sér grein fyrir eðli þeirra þátta sem mótað hafa listsköpun mannsins í gegnum tíðina. Helstu þræðir lista- og hönnunarsögunnar eru raktir og settir í samhengi við samfélagsbreytingar á hverjum tíma.

Nemendur nýta sér fjölbreytta miðla við upplýsingaleit, þekkingaröflun og framsetningu verkefna.

Þekkingarviðmið:

  • helstu stíleinkennum og stefnum í listasögu frá hellamálverkum til og með iðnbyltingu og helstu hugtökum sem tengjast þeim
  • menningarlegri og hugarsfarslegri þróun og margbreytileika í mannlegu samfélagi
  • því hvernig listsköpun er nátengd samfélagslegum veruleika: landfræði, áhrif gróður og veðurfar, tækniframfarir á hverjum stað á hverjum tíma.
  • samfélagslegu, menningarlegu og efnahagslegu gildi listsköpunar
  • tengslum heimspeki, myndlistar og hönnunar

 

Leikniviðmið:

  • beita sjálfstæðum vinnubrögðum og tileinka sér gagnrýna hugsun
  • nota fagbókmenntir, tímarit, veraldarvefinn og fjölmiðla í upplýsingaöflun og gagnasöfnum
  • vinna á sjálfstæðan og skapandi hátt undir leiðsögn kennara að afmörkuðum verkefnum
  • nota hugtök sem tengjast faginu til að tjá skoðanir sínar og rökstyðja þær
  • nota mismunandi miðlunarleiðir í framsetningu verkefna

Hæfnisviðmið:

  • gera grein fyrir niðurstöðum verkefna sinna á fjölbreyttan, áhugaverðan og gagnrýninn hátt
  • bera saman, finna tengsl og draga ályktanir af listasögunni og þróun hennar og hvaða áhrif listsköpun hefur á samfélag á hverjum tíma
  • sýna sjálfstæði við útfærslu verkefna, einn og í hópavinnu undir leiðsögn kennara
  • setja listasöguna í menningarlegt og félagslegt samhengi og geri sér grein fyrir hvaða áhrif staðhættir, náttúruauðlindir, tækniframfarir og stjórnarfar hafa á listræna sköpun/myndlist
  • taka þátt í samvinnu með umburðarlyndi og virðingu fyrir öðrum að leiðarljósi
  • ræða um verkefni sín við aðra með almennri ígrundun og samanburði
Getum við bætt efni síðunnar?