Lita og formfræði - Sjónlistir 2 SJÓN1LF05
Nemandinn kynnist undirstöðuatriðummyndbyggingu og þjálfar sig í óhlutbundinni myndgerð. Hannskoðar hvernig eðli myndflatar og rýmis breytist eftir því á hvaða hátt línur og form raðast upp. Nemandinn kynnist eiginleikum og virkni ljós-, textíl- og efnislita og þjálfast í blöndun og framsetningu þeirra. Hann vinnur bæði á tvívíðum fleti og í rými ogbeitir margvíslegum efnum og aðferðum í þeirri vinnu.Hann kynnist verkum listamanna og hönnuða í tengslum við verkefnavinnu.Nemandinn ígrundar stöðugt verk sín í samvinnu við kennara og aðra nemendur og þjálfast í notkun grunnhugtaka í lita- og formfræði.
Þekkingarviðmið
Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
- grunnhugtökum í lita og formfræði
- virkni og áhrifum lína, forma, lita og ljóss á mismunandi stöðum í myndfleti og rými
Leikniviðmið
Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
- skoða myndbyggingu með óhlutbundnum formum, línum, litum og ljósi og fá fram mismunandi áhrif á myndfleti og í rými
- beita mismunandi efnum og áhöldumog blanda liti
Hæfniviðmið
Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:i
- rannsaka óhlutbundna myndbyggingu sjálfstætt með mismunandi efnum og aðferðum
- nýta grundvallaratriði í óhlutbundinni myndbyggingu, lita og formfræði til að tjá eigin hugmyndir
- nýta verk myndlistarmanna og hönnuða sem innblástur fyrir eigin verk
- ígrunda og ræða um verk sín og vinnuferli í samvinnu við kennara og aðra nemendurog nýta til þess grundvallarhugtök í lita- og formfræði