MARG1HM05 - Margmiðlun 1
Hreyfimyndagerð, hljóðvinnsla, myndvinnsla, stafræn ljósmyndun og upptaka
Lýsing: Nemendur kynnast grunnatriðum í myndvinnslu, hreyfimyndagerð, hljóðvinnslu og auka skilning sinn á stafrænni ljósmyndun og upptökutækni. Áhersla er lögð á að nemendur kynnist forritum og fjölbreyttum möguleikum þeirra sem hægt er að nýta við úrvinnslu skapandi verka sem byggja á stafrænni tækni. Nemendur kynnast lagskiptri myndvinnslu, lýsingar- og litaleiðréttingu. Þá vinna nemendur með klippiforrit við klippingu á eigin efni en gera jafnframt fjölbreyttar tilraunir með fundið efni t.d. af netinu.
Þekkingarviðmið: Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á: klippiforritum og stafrænum miðlum fyrir myndband og hljóð vinnuferli við gerð myndbands- og hljóðverka grunnatriðum í stafrænni myndvinnslu grunnatriðum í stafrænni ljósmyndun og upptökutækni grunnatriðum í myndvinnslu og möguleikum myndvinnsluforrita Leikniviðmið: Nemandi skal hafa öðlast leikni í að: skipuleggja, taka upp og klippa tímatengda miðla og ganga frá til sýningar í viðeigandi forriti taka stafrænar ljósmyndir og vinna með þær í myndvinnsluforritum velja viðeigandi forrit til að setja verkefni sín fram Hæfniviðmið: Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að: vinna á sjálfstæðan og skapandi hátt með margvísleg forrit við vinnslu og framsetningu á eigin hugmyndum og verkum fullvinna verk með viðeigandi hætti með tilliti til þess á hvaða formi verkið skal birt