MARG2GH05 - Margmiðlun 2
Grafísk uppsetning, vektorteikning og ferilmappa
Lýsing: Nemendur kynnast grunnatriðum í grafískri uppsetningu og vektorteikningu og auka skilning sinn á mikilvægi skipulagðrar hugsunar við grafíska framsetningu m.a. í samhengi við gerð ferilmöppu til kynningar á eigin verkum. Áhersla er lögð á að nemendur kynnist forritum og fjölbreyttum möguleikum þeirra sem hægt er að nýta við skapandi úrvinnslu verka sem byggja á stafrænni tækni. Nemendur kynnast möguleikum vektorteikningar og fá þjálfun í að vinna með samspil mynda og texta. Nemendur þjálfast í ferilmöppugerð sem mögulegt er að nýta vegna umsóknar um framhaldsnám á háskólastigi.
Þekkingarviðmið: Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á: hönnunarforritum og möguleikum þeirra til skapandi úrvinnslu grunnatriðum í grafískri uppsetningu grunnatriðum í verktorteikningu samspili mynda og texta í grafískri framsetningu hvernig gengið er frá stafrænu efni Leikniviðmið: Nemandi skal hafa öðlast leikni í að: vinna með vektorteikningu vinna með myndir og texta í hönnunarforritum velja viðeigandi forrit til að setja verkefni sín fram Hæfniviðmið: Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að: vinna á sjálfstæðan og skapandi hátt með margvísleg forrit við vinnslu og framsetningu á eigin hugmyndum og verkum fullvinna verk með viðeigandi hætti með tilliti til þess á hvaða formi verkið skal birt