UPPE2FF05 - Viðburðastjórnun, tómstunda- og félagsmálafræði
forvarnir, félagsmál, tæknimál, áætlanagerð
Einingafjöldi: 5
Þrep: 2
Forkröfur: engar
Þrep: 2
Forkröfur: engar
Í áfanganum er fjallað um tómstundastarf, félagsmál og viðburði. Lögð er áhersla á að nemandinn kynnist fjölbreyttu starfi sem viðkemur skipulagningu hverskonar viðburða og tómstundastarfs. Kynntar eru helstu gerðir áætlana s.s. fjárhags- og aðgerðaráætlanir ásamt lögum og reglum sem gilda hverju sinni um viðburði og tómstunda- og félagsmálastarf. Nemandinn fær kynningu á tækni sem nýtist við viðburði og skýrslugerð. Með öflugu tómstunda- og félagsmálastarfi er lagður grunnur að menningar- og uppeldishlutverki sem getur skapað tækifæri og þekkingu. Tómstundir og félagsmál þarf að miða við samfélagið og þær breytingar sem verða á því hverju sinni. Gott félagslíf og tómstundir stuðla að forvörnum og því er mikilvægt að miða undirbúning og þátttöku að skemmtun án vímuefna. Í góðu félags-og tómstundastarfi er lagður grunnur að góðu samfélagi, samvinnu, rökhugsun, ábyrgð og víðsýni.
Þekkingarviðmið
- grunnskipulagi á stjórnun og skipulagi viðburða í tómstundastarfi og félagslífi
- rannsóknarstarfi á eftirspurn og áhuga viðburða
- áætlanagerð
- fjárhagsáætlunum og aðgerðaáætlunum
- viðburðastjórnun þar sem lög og reglur eru virtar
- uppbyggilegu tómstundastarfi þar sem forvarnir eru hafðar að leiðarljósi
- viðburðastjórnun sem skaðar ekki umhverfi og hefur ekki slæm áhrif á samfélagið
- tækjum og tækni sem þarf til þess að halda viðburð
- skýrslugerð þar sem mat er lagt á hvernig tókst að framkvæma viðkomandi viðburð
- samningagerð
Leikniviðmið
- nota skipulag sem byggt hefur verið í kringum viðburði
- stýra viðburðum í sátt og samlyndi við umhverfið
- gera áætlanir sem þarf fyrir viðburði
- skoða hvaða lög og reglur gilda hverju sinni
- hafa yfirsýn yfir verkefni sem þarf að leysa í félagsmála-og tómstundastarfi
- vera mótttækilegur fyrir breytingum sem verða í samfélaginu og miða tómstundastarf við það
- miðla áfram þekkingu sem fengist hefur
Hæfnisviðmið
- skipuleggja smærri viðburði
- fá tilskilin leyfi fyrir viðburðum
- gera samninga og fjárhagsáætlanir eða aðrar áætlanir fyrir viðburði og tómstundastarf
- vinna úr rannsóknargögnum á tómstundum
- vera opinn fyrir hugmyndum og nýta sér nýjungar
- beita grundvallaratriðum forvarna
- meta eigið vinnuframlag og annarra á gagnrýninn hátt
- setja fram þekkingu sína í ræðu og riti