ÍÞRG3FL03 - Fimleikar og lyftingar
fimleikar, lyftingar
Einingafjöldi: 3
Þrep: 3
Þrep: 3
Í áfanganum fá nemendur undirstöðuþekkingu í fimleikum og lyftingum. Lögð verður áhersla á kennslu, grunnfærni og tækni fyrir byrjendur í t.d. ólympískum lyftingum. Stefnt er að því að nemendur öðlist ákveðna grundvallarfærni í greinunum. Farið er yfir helstu atriði í þjálffræði þessara greina og mikilvægi þess að æfingar séu greindar í stuttar einingar. Nemendur þjálfast í kennslu viðkomandi íþróttagreina og framkvæmd æfinga. Áfanginn er bóklegur og verklegur.
Þekkingarviðmið
- kennslu í grunntækni íþróttana
- skipulagi á þjálfun fyrir börn og unglinga
- leikreglum
- helstu þjálfunaraðferðum
- fjölbreyttum tækni- og leikæfingum í þessum íþróttagreinum og mikilvægi þeirra
Leikniviðmið
- leiðbeina börnum á mismundandi aldri í viðkomandi íþrótt
- beita mismunandi þjálfunaraðferðum með ákveðin markmið að leiðarljósi svo sem þol, kraft og tækni
- stunda fimleika og lyftingar sér til gamans.
- sýna og framkvæma ýmsar æfingar sem tengjast íþróttunum
Hæfnisviðmið
- geta þjálfað ýmsa aldurshópa í fimleikum og lyftingum
- búa til tímaseðla, vikuáætlun og mánaðaráætlun með ákveðinn aldur í huga
- kenna börnum rétta tækni